Auglýst eftir umsóknum í NOS-HS
NOS-HS býður upp á styrki til að standa straum af kostnaði vegna vinnusmiðja (workshops). Næsti umsóknarfrestur er 31. mars 2021.
Rannsakendur sem starfa að rannsóknum í hug- og félagsvísindum og skyldum greinum geta sótt um styrk. Rannsakendur frá að minnsta kosti þremur Norðurlöndum skulu koma hverri umsókn, þar sem skipulagðar eru tvær til þrjár vinnusmiðjur í röð.
Markmið styrkjanna er að stuðla að samvinnu og myndun tengslanets milli norrænna rannsakenda og að þróun nýrra rannsóknasviða og verkefna innan hug- og félagsvísinda á Norðurlöndunum. Markmiðið er einnig að styðja þátttöku norrænna rannsakenda í stórum alþjóðlegum verkefnum (t.d. Horizon 2020).
Hægt er að sækja um styrk fyrir kostnaði við skipulagningu vinnusmiðjanna, en ekki fyrir kostnaði vegna rannsókna.
Umsóknarkerfi NOS-HS hefur verið opnað og umsóknarfrestur rennur út 31. mars 2021 kl. 13:15 (16:15 að finnskum tíma).
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu NOS-HS.