Auglýst eftir umsóknum í Jafnréttissjóð Íslands

27.2.2025

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jafnréttissjóð Íslands og er umsóknarfrestur til 10. apríl 2025, kl. 15:00

Til­gangur Jafnréttissjóðs Íslands er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að stuðla að jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu.

Tilgreint er í fjármálaáætlun hvaða ár úthlutun eigi að fara fram á hverju fimm ára tímabili en gert er ráð fyrir úthlutun á tveggja ára fresti.

Jafnréttissjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum. Árið 2025 hefur sjóðurinn 60. m.kr. til ráðstöfunar.

Úthlutað verður næst úr sjóðnum 19. júní 2025.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (mínar síður). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi. 

Vefsvæði Jafnréttissjóðs Íslands









Þetta vefsvæði byggir á Eplica