Auglýst eftir umsóknum í Íþróttasjóð
Búið er að opna fyrir umsóknir í Íþróttasjóð vegna verkefna fyrir árið 2023. Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til mánudagsins 3. október 2022 klukkan 15:00.
Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:
- Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
- Útbreiðslu- og fræðsluverkefna, sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að jafnrétti í íþróttum
- Íþróttarannsókna
- Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga
Umsóknarfrestur er til kl.15.00 mánudaginn 3. október 2022.
Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu Íþróttasjóðs. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.
Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson í netfanginu andres.petursson(hja)rannis.is eða í GSM síma 699 2522