Auglýst eftir umsóknum í Æskulýðssjóð haustið 2024
Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er þriðjudagurinn 15. október 2024 klukkan 15:00.
Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:
- Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra
- Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða
- Nýjungar og þróunarverkefni
- Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.
Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum.
Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á að styrkja verkefni sem stuðla að virkni og félagslegri þátttöku ungs fólks í tómstunda- og æskulýðsstarfi.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna síðu Æskulýssðjóðs