Auglýst eftir umsóknum í Æskulýðssjóð

7.1.2025

Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til mánudagsins 17. febrúar 2024 klukkan 15:00.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:

  • Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra
  • Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða
  • Nýjungar og þróunarverkefni
  • Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka

Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.

Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum.

Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á að styrkja verkefni sem stuðla að virkni og félagslegri þátttöku ungs fólks í tómstunda- og æskulýðsstarfi.

Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á síðu sjóðsins:
Æskulýðssjóður









Þetta vefsvæði byggir á Eplica