Auglýst eftir umsóknum í Æskulýðssjóð
Búið er að opna fyrir umsóknir í Æskulýðssjóð. Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til fimmtudagsins 17. október 2022 klukkan 15:00.
Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:
- Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra
- Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða
- Nýjungar og þróunarverkefni
- Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem t.d. þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa
Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum.
Sérstök áhersla verður að þessu sinni að styrkja verkefni sem stuðla að virkni og félagslegri þátttöku.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á síðu Æskulýðssjóðs .