Spurt og svarað

Vinsamlegast hjálpið okkur að uppfæra þessa síðu um „spurt og svarað“. Sendið okkur línu ef þið eruð með spurningu almenns eðlis og finnið ekki svar við henni hér eða fannst svarið ekki nógu skýrt.

barnamenningarsjodur@rannis.is

Hverjir geta sótt í Barnamenningarsjóð?

Starfandi listamenn, list- og menningartengdar stofnanir, félagasamtök og aðrir þeir er sinna menningarstarfi fyrir börn og ungmenni í samræmi við opinbera menningarstefnu. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna.

Hlutverk barnamenningarsjóðs 

  • Hlutverk Barnamenningarsjóðs er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. 
  • Barnamenningarsjóður Íslands hafi að markmiði að fjármagna og styrkja verkefni á sviði barnamenningar. Jafnframt verði lögð áhersla á verkefni sem efli samfélagsvitund og stuðli að lýðræðislegri þátttöku barna í samfélaginu og verkefni er stuðli að áframhaldandi innleiðingu barnasáttmálans, samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Má sækja um á ensku? 

Já 

Hvaða vafra á að nota? 

  • Fyrir Windows notendur mælum við með Google Chrome. Fyrir Mac mælum við með nýjum útgáfum af Safari.
  • Ekki vera með meira en eina umsókn opna í einu.

Hvernig er umsóknarkerfið? 

  • Notast er við rafræn skilríki í snjallsíma eða íslykil. Hægt er að stofna fleiri en eina umsókn.
  • Umsókn verður ekki gild fyrr en ýtt er á „senda inn“ á lokasíðu umsóknarformsins. Þar er hægt að skoða umsókn í pdf skjali. 
  • Vistið eftir hvert skref (síðu) í umsóknarforminu. 
  • Ef farið er út úr umsókn er hægt að fara inn aftur á mínum síðum. „Umsóknir í vinnslu“ er fremst þegar komið er inn á mínar síður. 
  • Umsóknarblaðið leiðir umsækjanda áfram og margir reitir eru skyldureitir – úthlutanir fyrri ára koma sjálfkrafa fram á kt. styrkþega. 
  • Aðgang að umsóknarkerfinu er að finna á forsíðu sjóðsins. 

Hver er umsóknarfrestur? Get ég lent í vandræðum á lokadegi. 

  • Umsóknarfrestur er að vori ár hvert, sjá nánar á forsíðu sjóðsins
  • Eindregið er mælt með að sækja um með góðum fyrirvara og forðast tímaþröng á síðasta degi. 
  • Á lokadegi getur kerfið verið þungt í vöfum vegna álags og hugsanlega leitt til vandræða við frágang umsóknar.
  • Ef umsækjandi er að senda umsókn á síðustu stundu og lendir í tæknilegum vandræðum tengdum umsóknarkerfi Rannís þarf að TILKYNNA það með tölvupósti ÁÐUR EN UMSÓKNARFRESTI LÝKUR og helst að láta skjáskot sem sýna vandamálið fylgja með. Tilkynningar um tæknileg vandamál sem berast eftir að umsóknarfrestur er liðinn verða ekki teknar til greina. 
  • Vandamál ótengd umsóknarkerfi Rannís eru að öllu jöfnu ekki tekin til greina og vísað til þess að opið er fyrir umsóknir í 6 vikur eða lengur. Tilkynningar um slík vandamál sem berast eftir umsóknarfrest eru ekki teknar til greina.

Fylgigögn – hvernig á að skila þeim? 

  • Fylgigögn verða að koma með umsókninni í gegnum umsóknarkerfið. 
  • Ekki er tekið á móti fylgigögnum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Ég get ekki sent umsóknina inn 

  • Þegar komið er á lokasíðu getur birst rauð vísun í einhverja síðu umsóknarinnar, þá átt þú eftir að klára eitthvað í umsókninni á þeirri síðu sem vísað er til. Ekki á að smella á rauða textann, heldur farðu á viðeigandi síðu, fylltu inn það sem vantaði og vistaðu. 
  • Ef eitthvað annað er að hindra sendingu hafðu þá samband í síma 5155838 eða 5155839
  • Ef umsækjandi er að senda umsókn á síðustu stundu (eftir að hægt er að fá aðstoð/ráðgjöf hjá Rannís) og lendir í tæknilegum vandræðum tengdum umsóknarkerfi Rannís þarf að TILKYNNA það með tölvupósti ÁÐUR EN UMSÓKNARFRESTI LÝKUR og helst að láta skjáskot sem sýna vandamálið fylgja með. Kvartanir um tæknileg vandamál sem berast eftir að umsóknarfrestur er liðinn verða ekki teknar til greina. 
  • Vandamál ótengd umsóknarkerfi Rannís eru að öllu jöfnu ekki tekin til greina og vísað til þess að opið er fyrir umsóknir í 6 vikur eða lengur. Tilkynningar um slík vandamál sem berast eftir umsóknarfrest eru ekki teknar til greina.

Hvernig veit ég að umsókn mín er móttekin? 

  • Fara inn á Mínar síður og þar í Umsóknir > Innsendar. Sé umsóknin þar er hún móttekin. Einnig er hægt að skoða PDF þar.

Hvenær get ég átt von á svari? 

Stjórn sjóðsins tilkynnir um úthlutun úr sjóðnum á degi barnsins ár hvert. Allir umsækjendur fá svör í tölvupósti. Úthlutun mun einnig birtast á heimasíðu Rannís og menningarráðuneytis.

Áfanga- og/eða lokaskýrsla, frestun vegna covid 

  • Almennt gildir að hafi styrkþegi fengið styrk áður úr Barnamenningarsjóði þarf að vera búið að skila lokaskýrslu fyrir það verkefni áður en ný umsókn er tekin til umfjöllunar.
  • Ef styrkþegi fékk úthlutun úr Barnamenningarsjóði árið 2023 til verkefnis sem náði til meira en eins árs tímabils skal skila áfangaskýrslu vegna þess verkefnis áður en ný umsókn er tekin til umfjöllunar.
  • Ef styrkþegi hefur fengið framlengingu á styrktu verkefni skal skila inn áfangaskýrslu vegna þess verkefnis áður en ný umsókn er tekin til umfjöllunar.
  • Nánari upplýsingar um skýrslur  hér .

Hvernig er stjórn barnamenningarsjóðs skipuð? 

Menningarráðherra skipar fimm manna stjórn miðstöðvar barnamenningar sem jafnframt er stjórn Barnamenningarsjóðs sjóðsins. Stjórn sjóðsins tilkynnir um úthlutun úr sjóðnum á degi barnsins ár hvert. 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica