Nýsköpunarþing 2023

  • NTh23-samf-1024x768_1696598894721

Hugverkastofan, Rannís, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins buðu til Nýsköpunarþings 2023 í Grósku 26. október. Á þinginu var kastljósinu beint að nýsköpunarfyrirtækjum sem starfa á sviði líf- og heilbrigðisvísinda.

Stofnendur og stjórnendur Íslenskrar erfðagreiningar, Kerecis, Alvotech, NOX Medical, Sidekick Health, BIOEFFECT, Oculis og Algalíf munu fjalla um árangur sinna fyrirtækja frá mismunandi sjónarhóli. Öflug nýsköpun á sviði líf- og heilbrigðisvísinda hefur leitt af sér þúsundir hátæknistarfa og milljarða í útflutningstekjur. Samfélagslegt mikilvægi þessara fyrirtækja er einnig mikið því starfsemi þeirra bjargar mannslífum, bætir heilsu og eykur lífsgæði fólks um allan heim.

Að erindum loknum mun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, veita Nýsköpunarverðlaun Íslands 2023.

Í lok þingsins verður boðið upp á léttar veitingar.

Öll velkomin.

Fundarstjóri: Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar

13:30 Setning - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
13:35 Aðalerindi

  • Brautryðjandinn - Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar
  • Einhyrningurinn - Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis

14:05 Styttri erindi

  • Lilja Kjalarsdóttir, forstöðumaður rekstrar og stefnumótunar í rannsóknar- og þróunardeild Alvotech

  • Einar Stefánsson, stofnandi Oculis
  • Sæmundur Oddsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri lækninga og rannsókna Sidekick Health
  • Berglind Johansen, framkvæmdastjóri sölusviðs BIOEFFECT
  • Sveinbjörn Höskuldsson, þróunarstjóri Nox Medical

14:45 Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands 2023

  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

15:00 Léttar veitingar og spjall í miðrými Grósku

Nýsköpunarþing er haldið í samstarfi Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Hugverkastofunnar.

Rannis_1661349940553

Islandsstofa-business-iceland-tall



Logo-svart-a-gulum-grunni









Þetta vefsvæði byggir á Eplica