Innviðasjóður

Fyrir hverja?

Háskóla, opinberar rannsóknastofnanir og fyrirtæki.

Til hvers?

Fjármögnun kaupa á dýrum rannsóknartækjum, uppbyggingu rannsóknarinnviða og aðgangs að rannsóknarinnviðum.

Umsóknarfrestur

Síðasti umsóknarfrestur var 1. nóvember 2023 


EN

Kynningarmyndband um Innviðasjóð.

Hægt er að skoða öll myndbönd um Innviðasjóð á Youtube rás Innviðasjóðs
Skoða myndbönd

Hvert er markmiðið?

Hlutverk Innviðasjóðs er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Markmiðið með sjóðnum er að efla innlendar vísindarannsóknir með því að skapa nýja möguleika til rannsókna með fjármögnun tækjabúnaðar/aðstöðu sem ekki er aðgengileg nú þegar.

Hvað er styrkt?

Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.

Innviðasjóður veitir eftirfarandi styrktegundir:

1. Tækjakaupastyrki

2. Uppbyggingarstyrki

3. Uppfærslustyrki

4. Aðgengisstyrki

5. Innviði á vegvísi

Skilyrði úthlutunar

Gert er ráð fyrir að umsækjandi leggi til mótframlag að lágmarki 25%.

Framlag Innviðasjóðs skal að lágmarki vera 2 milljónir króna fyrir Tækjakaup, Uppbyggingu, Uppfærslu eða viðhalds.  Ekkert lágmark er á Aðgengisstyrk.

Vinsamlegast kynnið ykkur reglur Innviðasjóðs áður en sótt er um.

Nánari upplýsingar


Sendið fyrirspurn til Innviðasjóðs á netfangið:








Þetta vefsvæði byggir á Eplica