Úthlutun úr Nýsköpunarsjóði námsmanna 2022

12.4.2022

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur lokið úthlutun fyrir sumarið 2022.

Nýsköpunarsjóði námsmanna bárust alls 413 umsóknir í ár fyrir 641 háskólanema. Umsóknarfrestur rann út 14. febrúar 2022.

Að þessu sinni hafði sjóðurinn um 343 milljónir króna til úthlutunar og hlutu 214 verkefni styrk og er því árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna og veitta styrki 52%. 

Í styrktum verkefnum eru 340 nemendur skráðir til leiks í alls 1.011 mannmánuði.

Allir umsækjendur fá tölvupóst með nánari upplýsingum um úthlutunina. Sá listi sem birtur er hér, er yfir þau verkefni sem hljóta styrk árið 2022. Listinn er birtur með fyrirvara um villur.

Verkefnin eru skráð eftir umsóknarnúmeri, nafni umsjónarmanns og titli verkefnis, ásamt upplýsingum um aðsetur umsjónarmanns og þá upphæð sem verkefnið hlýtur í styrk.

Sækja úthlutunartöflu (pdf)









Þetta vefsvæði byggir á Eplica