Rannís á Nýsköpunarviku: An Outstanding Innovation

10.5.2024

Rannís tekur þátt í Nýsköpunarvikunni með tveimur viðburðum miðvikudaginn 15. maí næstkomandi og eru öll velkomin.

  • An-Outstanding-Innovation-1-

Nýsköpunarsjóður námsmanna og Eurodesk á Íslandi bjóða til viðburðar undir yfirskriftinni "An Outstanding Innovation" á Nýsköpunarvikunni miðvikudaginn 15. maí 2024.

Viðburðurinn fer fram á ensku og hefst klukkan 10:15.

Á viðburðinum fá gestir að heyra frá ungum frumkvöðlum sem hafa vegna styrks frá Nýsköpunarsjóði námsmanna getað unnið að áhugaverðum rannsókna- og þróunarverkefnum í gegnum námsitt. Þá munu gesti einnig fræðast um tækifæri fyrir ungt fólk erlendis með stuðningi Eurodesk á Íslandi.

Viðburðurinn er skipulagður í samstarfi við Nýsköpunarviku Íslands og er haldinn í Pop-up rými (Regnboga) Nýsköpunarvikunnar á Hafnartorgi ( KORT )

Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á nýsköpun í íslensku samfélagi og vilja fræðast um tækifæri til stuðnings á því sviði.

Dagskrá

  • 10:15 Opnun -  Þorgerður Eva Björnsdóttir sérfræðingur hjá Rannís, segir frá Nýsköpunarsjóði námsmanna
  • 10:20 Nýsköpunarsjóður námsmanna, Tómas Orri Pétursson og Axel Pálsson segja frá verkefni sínu sem hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2023 – „Vélræn endurhæfing í heimahúsi með sýndarveruleika“
  • 10:35 Nýsköpunarsjóður námsmanna, Kristinn Magnússon kynnir verkefni sem hlaut styrk 2023 „Tæki til samfelldra mælinga á CO2 úr jarðvegi“
  • 10:50 Fræ og Sproti í Tækniþróunarsjóði – Íris Dögg Jónsdóttir sérfræðingur hjá Rannís
  • 11:00 Eurodesk - Miriam Petra Ómarsdóttir Awad sérfræðingur hjá Rannís 

Þess má geta að Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network eru með viðburð strax á eftir þar sem fjallað verður um tækifæri fyrir frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtæki á erlendri grundu.

Þá verður sýningarbás frá Rannís á sýningarsvæði Nýsköpunarvikunnar í Kolaportinu, þar sem tækifæri á sviði nýsköpunar verða í forgrunni.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica