Óskað eftir tilnefningum fyrir Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs

22.1.2024

Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 26. febrúar 2024.

  • Hvatningarverdlaun_tilnefningar_oskast

English Version

Hvatningarverðlaunin eru veitt ungu vísindafólki sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem styrki stoðir mannlífs á Íslandi.

Verðlaunaféð eru þrjár milljónir króna.

Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu ásamt rökstuðningi þess sem tilnefnir. Hvatningarverðlaunin verða afhent á Rannsóknaþingi í vor.

Almennt er miðað við að þeir sem koma til álita séu ekki eldri en 40 ára en þó er tekið fullt tillit til tafa sem kunna að verða á ferli viðkomandi vegna umönnunnar barna.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 26. febrúar 2024.

Tilnefningum ásamt rökstuðningi og ítarlegum upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað með tölvupósti til Rannís á netfangið rannis@rannis.is 
með yfirskriftinni "Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs-Tilnefning"

Senda inn tilnefningu

Fyrri handhafar Hvatningarverðlauna









Þetta vefsvæði byggir á Eplica