Úthlutað hefur verið um 122 milljónum króna til sjö verkefna úr kvikmyndahluta Menningaráætlunar ESB

28.8.2015

Íslenskum fyrirtækjum hefur gengið einstaklega vel í styrkúthlutunum það sem af er ári. Fimmtán íslenskar umsóknir hafa borist í MEDIA og sjö þeirra fengu samtals ríflega 122 milljónum úthlutað.

Ríflega 122 milljónum króna (817.920 evra) hefur verið úthlutað til sjö verkefna úr MEDIA kvikmyndahluta menningaráætlunar ESB og skiptust styrkirnir á eftirfarandi hátt:

Styrkir til framleiðenda

Styrkir til undirbúnings kvikmynda til íslenskra fyrirtækja:

  • Styrkir til undirbúnings einstakra verkefna til íslenskra fyrirtækja. Á fyrsta skilafresti umsókna fóru 4 íslenskar umsóknir og fékk engin þeirra úthlutun.
  • Styrkir til undirbúnings verkefnapakka til íslenskra fyrirtækja. Á fyrsta skilafresti umsókna fór ein íslensk umsókn og fékk úthlutun til undirbúnings fimm kvikmynda. Saga film ehf.              fékk úthlutað 200.000€ (ein heimildamynd: The Vasulkas, þrjár leiknar sjónvarpsþáttaraðir: Blackout, Stella Blómkvist og Hugborg og ein leikin kvikmynd í fullri lengd: Víti í Vestmannaeyjum.

Styrkir til framleiðenda til framleiðslu á sjónvarpsefni:

Á fyrsta skilafresti umsókna 2015 fóru tvær íslenskar umsóknir og fengu báðar þeirra úthlutun að samtals 545.920€.

  • Compass ehf. fékk úthlutað 45.920€ (Heimildarmynd: YARN: The movie)
  • Sögn ehf. (Blueeyes Productions) fékk úthlutað 500.000€  (Sjónvarpsþáttaröð: Ófærð).

Styrkir til dreifingar

Lán og styrkir til dreifingar á evrópskum kvikmyndum (valkerfið)

Á fyrsta skilafresti umsókna fóru 7 íslenskar umsóknir og fengu 3 þeirra úthlutun.

Bíó Paradís 3 kvikmyndir ( Une nouvelle amie, 3.000€, Bande de filles, 3.000€ og 1001 grams,    3.000€).                  

Styrkir til kvikmyndahátíða

Á fyrsta skilafresti umsókna fór ein íslensk umsókn og fékk hún úthlutun.

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Rvk. RIFF 2015 fékk úthlutað 63.000€ .

MEDIA / Kvikmyndir og margmiðlun, undiráætlun Creative Europe, styður evrópska kvikmyndagerð og margmiðlun með styrkjum til þróunar, dreifingar og kynningar á kvikmyndum og tölvuleikjum. Áætlunin styður verkefni með evrópska og alþjóðlega skírskotun og notkun á nýrri tækni.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica