Tækniþróunarsjóður heldur kynningarfund á Egilsstöðum
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 15. janúar kl. 12:00-13:00 í húsnæði Austurbrúar, Tjarnarbraut 39e, 700 Egilsstöðum.
Dagskrá:
Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, gerir grein fyrir:
- Styrkjaflokkum Tækniþróunarsjóðs
- Skattfrádrætti vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar
- Reglugerð um skattaívilnun til erlendra sérfræðinga
- Nýsköpunarsjóði námsmanna
- Eurostars-2
Áhugasamir hafi samband við kolbrun@rannis.is eða kristjana@austurbru.is
Næsti umsóknarfrestur í sjóðinn er til 17. febrúar