BlueBio-ERA-NET auglýsir eftir umsóknum

16.6.2021

ERA-NET Cofund Blue Bioeconomy – Unlocking the Potential of Aquatic Bioresources (BlueBio) er samstarfsnet 17 Evrópuþjóða til að efla samvinnu og ýta undir rannsóknir og nýsköpun á bláa lífhagkerfinu og er Ísland aðili að netinu í gegnum Rannís

Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir samstarfsverkefni, sem íslenskir aðilar geta sótt um í samstarfi við aðrar þátttökuþjóðir. Upplýsingar um umsóknarferlið má nálgast á vef netsins:

Skoða vef 

Auglýst er eftir umsóknum á þremur sviðum:

A. Sustainable exploration of the aquatic environment and biological resources

B. Sustainable and resilient biomass production and processing

C. Traceability and regulatory constraints

Umsóknaferlið er tveggja þrepa. Í fyrra þrepi er send inn forumsókn. Þær umsóknir sem standast mat á fyrsta þrepi fá boð um að senda inn umsókn á seinna þrepi.

Frestur til að skila inn forumsókn er til 20. september 2021.

Kynningfundur og leit að samstarfsaðilum:

ERA-netið aðstoðar við leit að samstarfsaðilum (matchmaking). “Matchmaking” fundir verða skipulagðir og haldnir 21. júní. Áhugasamir eru hvattir til kynna sér þá möguleika sem eru í boði.

Nánari upplýsingar má má finna á BlueBio.eu

Styrkir til íslenskra aðila í samþykktum verkefnum eru fjármagnaðir af Tækniþróunarsjóði.

Frekari upplýsingar um kallið veitir Lýður Skúli Erlendsson hjá Rannís.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica