Rafrænn upplýsingafundur um Clean Energy Transition (CET) samfjármögnunina 14.8.2024 12:00 - 14:30 Rafrænn upplýsingafundur

Markmiðið með fundinum er meðal annars að efla þátttöku Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í samfjármögnunni. Fundurinn verður haldinn 14. ágúst nk. og hefst klukkan 12:00 að íslenskum tíma (14:00 CEST).

Lesa meira
 

Vinnustofa fyrir rannsakendur frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum 19.8.2024 - 21.8.2024 Vinnustofa Færeyjum

Vinnustofa fyrir rannsakendur frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum verður haldin 19.-21. ágúst 2024 í Norræna húsinu í Þórshöfn á Færeyjum. Vinnustofan er fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni.

Lesa meira
 

Velkomin á Nordplus Café! 26.8.2024 11:00 Rafrænn upplýsingafundur

Þann 26. ágúst næstkomandi kl. 11:00 verður rafrænn upplýsingafundur haldinn um næsta umsóknarfrest í Nordplus en þá verður hægt að sækja um styrki til að fara í undirbúningsheimsóknir.

Lesa meira
 

Kynningarfundir á styrkjum Tækniþróunarsjóðs 26.8.2024 12:00 - 14:00 Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum

Sérfræðingar Tækniþróunarsjóðs verður með þrjár kynningar 26.-28. ágúst næstkomandi. Fundirnir verða haldnir á Suðurnesjum, Vestjförðum og í streymi.

Lesa meira
 

Styrkir til nýsköpunar 26.8.2024 13:00 Þekkingarsetur Vestamannaeyja

Rannís heldur kynningarfund í Vestmannaeyjum 26. ágúst 2024 klukkan 13:00.

Lesa meira
 

Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð 27.8.2024 8:30 - 10:00 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Samtök iðnaðarins, Samtök sprotafyrirtækja og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð þriðjudaginn 27. ágúst kl. 8:30-10:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalnum Hyl á 1. hæð. 

Lesa meira
 

Landskrifstofa Erasmus+ heldur opna vinnustofu um inngildingu þann 29. ágúst frá 10-13. 29.8.2024 10:00 - 13:00 Nauthóll

Vinnustofan er liður í auknum stuðningi við styrkþega og mögulega styrkþega. Næstu umsóknarfrestir eru í október og því vonar landskrifstofan að með stuðningi sem þessum geti fleiri verkefni sótt um inngildingarstyrk eða skipuleggi verkefni sín almennt með meira inngildandi hætti.

Lesa meira
 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica