Október 2024

október 2024

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Æskulýðssjóður 15.10.2024 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Börn og ungmenni,  á aldrinum 6-25 ára.

Til hvers?

Auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína. 

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er 15. október 2024 klukkan 15:00

Senda fyrirspurn

 EN

Lesa meira
 

Listamannalaun 1.10.2024 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur,  tónskáld og kvikmyndahöfunda. Sjá nánar undir Spurt og svarað.

Tilgangur

Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög [ 57/2009.]

Umsóknarfrestur vegna listamannalauna 2025.

Umsóknarfrestur er 1. október 2024, kl 15:00. 

Sjá áherslur stjórnar vegna 2025 úthlutunar .
Mánaðarleg upphæð listamannalauna árið 2024 er 538.000 kr.

Senda fyrirspurn

EN

Lesa meira
 

Sviðslistasjóður 1.10.2024 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?
Atvinnusviðslistahópa.

Til hvers?
Veittir eru styrkir til einstakra verkefna.

Úthlutun.
Að jafnaði liggur úthlutun fyrir í janúar ár hvert.

Umsóknarfrestur í Sviðslistasjóð 2025
Umsóknarfrestur er 1. október 2024, kl 15:00. 


Umsækjendum er bent á eftirfarandi breytingar:

  • Að öðru jöfnu skulu styrkþegar nýta styrki sína innan 30 mánaða (í stað 18 mánaða áður / 4. og 7. gr í uppfærðum reglum ).
  • Uppfærður matskvarði 

Senda fyrirspurn

EN

Lesa meira
 

Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna 1.10.2024 Umsóknarfrestur fyrir ný verkefni

Fyrir hverja?

Fyrirtæki sem eru eigendur rannsókna- eða þróunarverkefna. Háskólar og stofnanir teljast ekki fyrirtæki í skilningi þessara laga.

Til hvers?

Fyrirtæki sem hafa fengið staðfestingu Rannís á rannsókna- eða þróunarverkefni eiga rétt á frádrætti á tekjuskatti skv. lögum nr. 152/2009. Sé álagður tekjuskattur lægri en ákvarðaður frádráttur, eða lögaðila ekki ákvarðaður tekjuskattur vegna skattalegs taps, þá er frádrátturinn greiddur út

Umsóknarfrestur: 

 

  • Umsóknarfrestur vegna nýrra verkefna: Til og með 1. október 2024 klukkan 24:00.

  • Vegna framhaldsumsókna: Umsóknafrestur fyrir framhaldsumsóknir um Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna var 2. apríl 2024.

EN

Lesa meira
 

Íþróttasjóður 1.10.2024 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Íþrótta- og ungmennafélög, og fyrir þá sem starfa að útbreiðslu- og fræðsluverkefnum á sviði íþrótta. Einnig þá sem starfa að rannsóknum á sviði íþrótta.

Lágmarksstyrkur til verkefna er 250 þúsund krónur.

Til hvers?

Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna. Að þessu sinni verður horft sérstaklega til verkefna sem stuðla að inngildingu í íþróttum. Sérstaklega þá til verkefna með börnum af erlendum uppruna. 
Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.

Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur er: 1. október 2024 klukkan 15:00.

Senda fyrirspurn

EN

Lesa meira
 

SEF - Samstarfsnefnd um endur­menntun framhalds­skóla­kennara 7.10.2024 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Framhaldsskóla og faggreinafélög framhaldsskólakennara sem bjóða endurmenntun, fyrirlestra og ráðstefnur.

Til hvers?

Hægt er að sækja um styrki til að skipuleggja sumarnámskeið framhaldsskólakennara, gestafyrirlestur á vegum fagfélags, þátttöku í ráðstefnum og vettvangsnám. Sótt er um ráðstefnu- og gestafyrirlesarastyrki að hausti en fyrir styrki til að halda sumarnámskeið að vori. 

 

Opið er fyrir umsóknir um ráðstefnu- og gestafyrirlesarastyrki. Lokadagur umsókna er 7. október 2024 kl.15:00

 

Senda fyrirspurn.

 EN

Lesa meira
 

Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla 7.10.2024 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Kennara, náms- og starfsráðgjafa, skólameistara og aðra stjórnendur framhaldsskóla sem starfað hafa í a.m.k. fimm ár við kennslu- eða stjórnunarstörf í framhaldsskóla. Þeir ganga fyrir sem ekki hafa hlotið launað námsorlof áður (frá grunn- eða framhaldsskólakennslu).

Til hvers?

Tilgangur námsorlofs er að veita þeim sem um það sækja tækifæri til að efla þekkingu sína og hæfni í starfi.

Umsóknarfrestur

Lokadagur umsókna er 7. október kl. 15:00

Senda fyrirspurn.

EN

Lesa meira
 

Erasmus+ Nám og þjálfun 1.10.2024 10:00 Umsóknarfrestur í Nám og þjálfun

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst umsóknarfresti náms- og þjálfunarverkefna í Erasmus+ fyrir árið 2024.

Lesa meira
 

ESC - Sjálfboðaliðaverkefni og samfélagsverkefni 1.10.2024 Umsóknarfrestur European Solidarity Corps (ESC)

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst umsóknarfresti í European Solidarity Corps fyrir árið 2024.

Lesa meira
 

Erasmus+ Samstarfsverkefni 1.10.2024 Umsóknarfrestur Samstarfsverkefna

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst umsóknarfresti samstarfsverkefna í Erasmus+ fyrir árið 2024.

Lesa meira
 

Netöryggisstyrkur Eyvarar NCC-IS 1.10.2024 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja

Lítil og meðalstór fyrirtæki, og opinberar stofnanir í sama stærðarflokki.

Til hvers:

Hægt er að sækja um styrk til að efla netöryggi og varnir.

Umsóknarfrestur: 

Umsóknarfrestur rennur út 1. október 2024 klukkan 15:00.

Umsóknarfrestur er einu sinni til tvisvar á ári. 

EN

Lesa meira
 

Opið er fyrir umsóknir um undirbúningsstyrki í Nordplus 1.10.2024 Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur um undirbúningsstyrki í Nordplus Junior, leik- grunn- og framhaldsskólastig, Nordplus Voksen, fullorðinsfræðsla og Nordplus Sprog, norræn tungumál er 1. október 2024. 

Lesa meira
 

Níunda norræna-kínverska norðurslóðaráðstefnan 14.10.2024 - 16.10.2024 Akureyri

Vakin er athygli á því að níunda norræna-kínverska norðurslóðaráðstefnan verður haldin á Akureyri, 14. - 16. október 2024. Ráðstefnan er helguð vísindasamvinnu og þekkingu í þágu sjálfbærni á norðurslóðum. 

Lesa meira
 

Sustainable Living Summit: Taktu þátt í breytingum! 15.10.2024 Ráðstefna

Er sjálfbærni þér hugleikin? Nú hefur þú tækifæri til að læra meira og taka þátt í mikilvægu samtali á ráðstefnu um sjálfbæran lífsstíl á Sustainable Living Summit sem fer fram þann 15. október 2024.

Lesa meira
 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica