Nýsköpunarþing 2024 - Markaðsmálin

  • Nyskopunarthing-2024-mynd-med-grein

Rannís, Hugverkastofan, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins bjóða til Nýsköpunarþings 2024 í Grósku 22. október kl. 14:00-15:30.

Á þinginu verður sjónum beint að sölu- og markaðsmálum íslenskrar nýsköpunar á erlendum mörkuðum.

Hvað þarf til, til að ná árangri á alþjóðlegum mörkuðum? Er rétt fyrir íslensk fyrirtæki að flagga íslenskum uppruna? Leggja íslensk fyrirtæki næga áherslu á sölu- og markaðsmál og uppbyggingu vörumerkja? Til að svara þessum spurningum og fleirum munu aðilar úr íslensku og alþjóðlegu markaðs- og nýsköpunarumhverfi deila reynslu af sölu- og markaðsstarfi á erlendum mörkuðum.

Í lok þingsins mun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, veita Nýsköpunarverðlaun Íslands 2024.

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.

Öll velkomin.

Dagskrá:

  • 14:00 Setning
    • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • 14:10 Erindi
    • Fura Ösp Jóhannesdóttir, sjálfstæður ráðgjafi og stjórnarformaður Brandenburg
    • Bolli Thoroddsen, meðstofnandi Trip To Japan
    • Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Hefring Marine
    • María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar
  • 15:00 Pallborð með þátttöku fyrirlesara
  • 15:15 Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands 2024
    • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • 15:30 Léttar veitingar og spjall í miðrými Grósku

Fundarstjóri: Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, forstöðumaður útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu.

Skráning fer fram hér

Facebook viðburður








Þetta vefsvæði byggir á Eplica