Á döfinni
Kynntu þér stafræn tækifæri hjá Rannís á UTmessu 2023 í Hörpu
Fulltrúar Rannís munu kynna stafræn tækifæri innan þeirra sjóða áætlana sem Rannís er í forsvari fyrir, til dæmis innan Erasmus+, Tækniþróunarsjóðs og Horizon Europe.
Sérstök áhersla verður á Digital Europe áætlun Evrópusambandins en Digital Europe mun móta stafræna framtíð Evrópu og styður við verkefni sem brúa bilið milli rannsókna og þróunar og stafrænna afurða á markaði.
Eins verður kynnt þjónusta Rannís innan Enterprise Europe Network (EEN) en hlutverk Enterprise Europe Network á Íslandi er að upplýsa, fræða og leiðbeina fyrirtækjum á Íslandi án endurgjalds varðandi tækifæri á alþjóðamarkaði.