Hvernig á að skilja Horizon Europe?
Rannís stendur fyrir vefstofu (e. The Intelligence behind Horizon Europe and how organisations from Iceland should exploit it intelligently) fyrir byrjendur og lengra komna í Horizon Europe þann 26. mars nk. frá 9:30 - 11:00 að íslenskum tíma.
Vefstofan er samstarfi Rannís og Nicolaos Floratos sem hefur áralanga reynslu og þekkingu á rammaáætlunum Evrópusambandsins eins og Horizon Europe.
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur (bæði byrjendur og lengra komnir) muni skilja hvað skiptir raunverulega máli í Horizon Europe og hvaða næstu skref þeir ættu að taka til að tryggja sér árangur innan áætlunarinnar.
Vefstofan sem er ókeypis, fer fram á netinu (Zoom) og verður ekki tekin upp.
Nauðsynlegt er að skrá sig:
Skráning á vefstofu