Júlí 2024

júlí 2024

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Á döfinni

Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Horizon Europe

  • 11.10.2023 - 19.10.2023, Upplýsingadagar Horizon Europe

Upplýsingadagar:

Á upplýsingadögunum 11. -12. október verða kynnt  rannsóknar- og nýsköpunarviðfangsefni næstu vinnuáætlunar (e. Work Programme) fyrir árin 2023-2024 í klasa 4 í Horizon Europe. 

Væntanlegum umsækjendum gefst þannig tækifæri til að læra meira um fjármögnunarmöguleika samkvæmt nýju vinnuáætluninni.

Dagskrá og nánari upplýsingar 

Tengslaráðstefnur:

Við viljum vekja sérstaka athygli á tengslaráðstefnu sem haldin verður á eftirfarandi dögum:

  • Geimur: 18. október - Opnað fyrir skráningu síðar

  • Iðnaður: 19. október 2023 -  Skráning

Á tengslaráðstefnunni  gefast tækifæri á að koma þér og þinni stofnun/fyrirtæki á framfæri.

Starfsmenn Rannís geta veitt aðstoð við textagerð en mikilvægt er að hafa hnitmiðaðan texta til að einfalda þátttakendum leit að réttum samstarfsaðilum á tengslaráðstefnunni. Sýnileikinn eykur líkurnar á að haft verið samband við viðkomandi með boð um að vera þátttakendur í stórri Evrópusambandsumsókn.

Ef einhverjar spurningar vakna eða þú vilt vita meira, þá getur þú sent línu eða slegið á þráðinn katrin.jonsdottir@rannis.is eða í síma 515 5852

Klasi 4 - stafræn tækni, iðnaður og geimur miðar að því að Evrópa móti samkeppnishæfa og áreiðanlega tækni fyrir evrópskan iðnað með alþjóðlegri forystu á lykilsviðum. Stuðli jafnframt að framleiðslu og nýtingu sem virðir þolmörk jarðarinnar og hámarki ávinninginn fyrir alla hluta evrópsks samfélag í félagslegu, efnahagslegu og svæðisbundnu samhengi.

Klasi 4 hefur eftirfarandi áherslusvið:

  • Umhverfisvænar og stafrænar framleiðslulausnir

  • Sjálfvirkni í virðiskeðju framleiðslu hráefnis til vöru

  • Gagna og skammtölvu tækni

  • Stafræn tækni sem eykur samkeppnishæfni og er í senn græn

  • Opnar og sjálfvirkar geimtæknilausnir sem gagnast innviðum, þjónustum, forritun og gagnamálum

  • Siðferðisleg þróun á stafrænni tækni með notendur í fyrirrúmi








Þetta vefsvæði byggir á Eplica