Júlí 2024

júlí 2024

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Á döfinni

Upplýsingadagur og tengslaráðstefna Horizon Europe

  • 17.10.2023, Upplýsingadagar Horizon Europe
  • 18.10.2023, Tengslaráðstefna

Upplýsingadagur:

Á upplýsingadeginum 17. október verða kynnt rannsóknar- og nýsköpunarviðfangsefni (topics) ársins 2024. Væntanlegum umsækjendum gefst þannig tækifæri til að fræðast meira um fjármögnunarmöguleika ársins 2024. Gert er ráð fyrir að rúmum 1 milljarði evra verði varið í verkefni sem leggja áherslu á græn og stafræn umskipti til að ná markmiðunum og kolefnislausa Evrópu árið 2050.

Dagskrá og nánari upplýsingar

Tengslaráðstefna 

Þann 18. október verður á vegum GREENET verkefnisins , tengslaráðstefna en yfir 1000 tóku þátt  á síðasta ári. Tengslaráðstefnur gefa einstakt tækifæri til að koma sjálfum sér og/eða  sinni stofunun á framfæri. Nauðsynlegt er að útbúa prófíl og merkja við þau köll sem viðkomandi hefur áhuga á.  Listi yfir komandi köll er að finna á síðunni. 

Starfsmenn Rannís geta veitt aðstoð við textagerð en mikilvægt er að hafa hnitmiðaðan texta til að einfalda þátttakendum leit að réttum samstarfsaðilum á tengslaráðstefnunni. Sýnileikinn eykur líkurnar á að haft verið samband við viðkomandi með boð um að vera þátttakendur í  Evrópusambandsumsókn.
Opið er fyrir skráningar til 30. september næstkomandi.

Um tengslaráðstefnuna og skráning

Ef einhverjar spurningar vakna eða þú vilt vita meira, þá getur þú sent línu eða slegið á þráðinn, kolbrun@rannis.is, 515 5814

Klasi 5 - loftslagsmál, orka og samgöngur miðar að því að berjast gegn loftslagsbreytingum. Markmiðið er að skilja betur orsakir þeirra, þróun, áhættu, áhrif og tækifæri með því að gera orku- og flutningageirann loftslags- og umhverfisvænni, skilvirkari og samkeppnishæfari, snjallari, öruggari og þrautseigari.

Klasi 5 hefur eftirfarandi áherslusvið:

  • Loftlagsvísindi og lausnir
  • Orkuflutningur
  • Orkudreifikerfi
  • Almennar bygginar og iðnaðar byggingar í orkuskiptum
  • Samfélög og borgir
  • Samkeppnishæfni í samgöngum
  • Hreinar, öruggar og aðgengilegar samgöngur
  • Snjallar samgöngur
  • Orkugeymsla







Þetta vefsvæði byggir á Eplica