Sjónvarpssjóður MEDIA
Helstu skilyrði til að sækja um styrk í sjónvarpssjóð MEDIA:
Að verkefnið sé þegar selt til a.m.k. tveggja sjónvarpsstöðva þátttökulanda í Creative Europe/MEDIA. Sækja verður um FYRIR fyrsta tökudag. Einungis er hægt að sækja um ef að verkefnið er þegar fjármagnað a.m.k. 40% og það sé staðfest með yfirlýsingum eða samningum við þriðja aðila. Þá þarf 50% af heildarkostnaði að koma frá löndum sem taka þátt í MEDIA áætluninni.
Hægt er að sækja um:
- allt að 300 þúsund evrum fyrir skapandi heimildarmyndir (a.m.k. 50 mín.)
- allt að 500 þúsund evrum fyrir leikið sjónvarpsefni (a.m.k 90 mín.) og teiknimyndir (amk 24 mín.).
- allt að milljón evra fyrir verkefni sem kosta 10 milljónir evra eða meira og
- allt að tvær milljónir evra fyrir verkefni sem kosta meira en 20 milljón evrur í framleiðslu.
CE/MEDIA sjónvarps- og streymisveitur styrkir framleiðslu á sjónvarpsefni. Margar íslenskar þáttaraðir hafa verið framleiddar með stuðningi frá sjónvarpssjóðunum á síðustu árum.
Áður en byrjað er á umsókn er betra að lesa fyrst umsóknargögnin og endilega hringja til að fá leiðbeiningar - æskilegt er að nota orðaforðann í umsóknargögnunum í umsókninni. Með bréfinu fylgir vegvísir að umsókninni (Call for Proposal).
Allar MEDIA umsóknir eru auglýstar í MEDIA umsóknagátttinni: Til að finna MEDIA þarf að setja inn ofarlega til vinstri í leitarreit “Type your keywords” og skrifa þar Creative Europe. Þá birtast öll umsóknargögn bæði fyrir MEDIA og Culture.
Hægt er að fá aðstoð við gerð umsókna og skráningu fyrirtækja í gagnagrunn ESB og við gerð umsókna.