Rannís og landskrifstofa Erasmus+ taka þátt í Mín framtíð
Framhaldsskólakynningin Mín Framtíð, sem haldin er annað hvert ár, býður öllum nemendum 9. og 10. bekkjar að koma og kynna sér fjölbreytt framboð náms á framhaldsskólastigi en alls munu 25 skólar kynna sitt námsframboð. Þá stendur Verkiðn einnig fyrir Íslandsmóti iðn- og verkgreina, þar sem keppendur reyna á hæfni sína í krefjandi verkefnum.
Rannís og Landskrifstofa Erasmus+ taka þátt í sýningunni með kynningarbás þar sem lögð verður áhersla á fjölbreytt tækifæri fyrir ungt fólk, t.d. til skiptináms, starfsnáms, ungmennaskipta, sjálfboðaliðastarfa og samfélagsverkefna. Þá verða stoðverkefni Erasmus+ einnig kynnt.
Á fimmtudeginum og föstudeginum verður opið fyrir skólahópa en á laugardeginum frá klukkan 10:00 til 15:00 er sýningin öllum opin og verður skemmtileg dagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna.
Mín framtíð er haldinn í samvinnu við Mennta- og barnamálaráðuneytið, sveitarfélög og fagfélög iðn- og starfsgreina.
Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á: www.minframtid.is