Digital Europe auglýsir opið kall til styrktar þróunar á stafrænni hæfni á háskólastigi
Meginmarkmið verkefnisins er að styðja við þróun og innleiðingu nýrra námsleiða á háskólastigi (í grunnnámi og meistaranámi) á sviði starfrænnar hæfni innan fræðisviða háskólanna. Sérstaklega er hvatt til þverfaglegrar nálgunar við þróun námsefnis / námsleiða með það að markmiði að efla hæfni nemenda til að innleiða og nota tækni á öflugan hátt í starfi sínu. Fræðisvið getur t.d. verið innan landbúnaðar, félagsvísinda, hugvísinda, menntavísinda, heilbrigðisvísinda, verkfræði og náttúruvísinda.
Námsefni getur verið á fjölbreyttu sviði tækniþróunar og má m.a. ná yfir þróun og notkun gervigreindar, netöryggis, gagnavinnslu, sýndarveruleika, öreindartækni, ljósmyndagreininga, skammtafræði og vélmenna.
Umsækjendur skulu velja a.m.k. eitt af eftirfarandi áherslusviðum:
-
Uppbygging stafrænnar hæfni: Hönnun og þróun nýrra námsleiða sem endurspeglar þá tækniþróun sem hefur átt sér stað innan fræðisviðsins og veitir nemendum fræðilega og hagnýta færni og þekkingu til að nýta og takast á við stafræna tækni.
-
Þjálfun og sérþekking kennara: Fjárhagslegur stuðningur til að þjálfa starfsfólk og / eða laða að nýtt starfsfólk t.d. úr einkageiranum. Aðgerðir til þess að styðja við kennaraskipti milli þeirra háskóla / stofnana sem eru hluti af háskólanetinu. Uppfæra stafrænar lausnir: Kaup, leiga og / eða innleiðing á búnaði og öðrum stafrænum tækniinnviðum með sérstakri áherslu á samvirkni upplýsingakerfa á milli samstarfsaðila.
-
Stuðningur við nemendur: Veita námstyrki til að laða að nemendur (allt að 20% af heildarkostnaði verkefnisins).
Nánari upplýsingar um kallið:
Digital Europe Programme - Call for Propopals (pdf)