Á döfinni
Creative Europe: Styrkir til fjölmiðlaverkefna-samstarf/ Journalism Partnerships
Creative Europe styrkir aukið samstarf fjölmiðla sem leiðir til:
- Nýjunga í viðskiptaháttum, framleiðslu og dreifingu
- Aukins áhuga á fjölmiðlun á meðal almennings
- Gæðaviðmiða fréttaflutnings
- Aukins samstarfs fjölmiðla
- Samstarfsnet fjölmiðla, til að efla og kynna gæðastarf á meðal fjölmiðlafólks
- Þekkingarsetur fyrir sviðið t.d. fyrir rafrænt form og/eða sérhæfð fjölmiðlaviðfangsefni
- Nám og þjálfun til að efla kunnáttu og þekking fjölmiðlafólks
Umsóknarfrestur er 27. april 2023
- Samstarf: Helmingur framlags áætlunar styður evrópskt samstarf fréttamiðla til að vinna að nýjum viðskiptaháttum og breytingum og /eða sjálfstæðum,óháðum verkefnum. Samstarf gæti byggt á fréttamiðlum eins og útvarpi, sjónvarpi, rafrænum miðlum, dagblöðum eða prentuðum miðlum. Verkefni byggist á þörfum einhverra ofangreindra sviða, t.d. að koma góðum árangri á framfæri, kynna nýjungar með þjálfun og viðburðum.
- Samstarf amk. 3 Evrópulanda
- Framlag ESB er 80% af gildum kostnaði og einstakur styrkur getur verið allt að 2 milljónum €.
-Tímalengd verkefnis er 24 mánuðir. - Fjölhyggja
- Nýjung - helmingur fjárframlags áætlunar er ætlað samtökum sem bjóða styrki til miðla sem styðja lýðræði og borgaralega þátttöku.
- Staðar- og héraðsmiðlar
- Sjálfstæð rannsóknar-blaðamennska
- Samtök sem hlúa að almannahagsmunum frétta/almenningsþjónusta t.d. sveitarfélög, fjölmiðlun á sviði laga og borgaralegra hagsmuna með gagnsæi í fyrirrúmi.
- Umsóknir geta verið í samstarfi eða frá einstökum stofnunum (ekki hagnaðardrifnar)
- ESB styrkir 90% af gildum kostnaði og allt að 3 milljónum € til einstakra verkefna. Tímalengd verkefnis er 24. Mánuðir.