Listamannalaun

listamannalaun(hja)rannis.is

Fyrir hverja?

Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur,  tónskáld og kvikmyndahöfunda. Sjá nánar undir Spurt og svarað.

Tilgangur

Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög [ 57/2009.]

Umsóknarfrestur vegna listamannalauna 2025.

Umsóknarfrestur er 1. október 2024, kl 15:00. 

  • Opið fyrir umsóknir: Innskráning gegnum Ísland.is

  • Sjá áherslur stjórnar vegna 2025 úthlutunar .
    Mánaðarleg upphæð listamannalauna árið 2024 er 538.000 kr.

    Senda fyrirspurn

    EN

    Launasjóðir og greiðslur

    Starfslaun listamanna eru veitt úr átta sjóðum:

    • launasjóði hönnuða
    • launasjóði myndlistarmanna
    • launasjóði rithöfunda
    • launasjóði sviðslistafólks
    • launasjóði tónlistarflytjenda
    • launasjóði tónskálda
    • launasjóði kvikmyndahöfunda
    • Vegsemd, sjóði fyrir listamenn 67 ára og eldri (ATH: Ekki er sótt um í Vegsemd heldur geta umsóknir listamanna 67 ára og eldri í ofangreinda sjóði fallið undir Vegsemd)

    Umsjón með sjóðunum er í höndum stjórnar listamannalauna.

    Starfslaun listamanna eru greidd mánaðarlega. Þau sem njóta starfslauna í sex mánuði eða lengur skulu ekki gegna fullu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur.

    Fjárhæð starfslauna skal koma til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála [ 4. gr. laga 57/2009].

    Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn því aðeins tekin til umfjöllunar að áfanga- eða lokaskýrslu vegna fyrri starfslauna hafi verið skilað til stjórnar listamannalauna, skv. 7. gr. reglugerðar um listamannalaun.

    Nánari upplýsingar

     
      Óskar Eggert Óskarsson, s. 515 5839  
      Ragnhildur Zoëga, s. 515 5838
      
      Tekið er á móti fyrirspurnum á: 
      listamannalaun(hja)rannis.is







    Þetta vefsvæði byggir á Eplica