Evrópurútan - á ferð um landið

  • Evropurutan-grafik

Í tilefni þess að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi.

Um er að ræða kynningu á samstarfsáætlunum ESB á sviði menntunar, menningar, rannsókna, nýsköpunar og æskulýðsstarfs, mun Evrópurútan hitta fjölbreytta markhópa á hverjum viðkomustað.

Evrópurútan er skipulögð af Rannís sem hefur umsjón með öllum helstu samstarfsáætlunum á sviði menntunar, menningar, rannsókna, nýsköpunar, umhverfismála, stafrænnar færni og fyrirtækjasamstarfs, auk norræns samstarfs og mun á hringferð sinni um landið veita upplýsingar um:

  • Erasmus+
  • Horizon Europe

  • Creative Europe
  • European Solidary Corps
  • Enterprise Europe Network
  • Digital Europe
  • LIFE
  • Nordplus

Óhætt er að segja að evrópsk tækifæri hafi verið nýtt vel hér á landi og haft víðtæk áhrif á samfélagið og viljum við tryggja að þær nýtist í öllum byggðum landsins með sínar fjölbreyttu þarfir og styrkleika. 

Aðgangur að viðburðum Evrópurútunnar er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!

Óskað er eftir skráningu á viðburðina fyrir áætlun veitinga á hverjum stað fyrir sig

Skráning á viðburð Evrópurútunnar

Hér má sjá viðkomustaði Evrópurútunnar í september ásamt dagssetningum.


 DagsetningTími Staðsetningfundarstaður  Viðburður
Mánudagur
16. sept.
10:00 - 12:00 Akranes  Breið Þróunarfélag, Bárugata 8-10 Facebook
Mánudagur
16. sept.
16:00 - 18:00Blönduós  Félagsheimilið Blönduósi, Húnabraut 6  Facebook
Þriðjudagur
17. sept.
11:00 - 13:00Sauðárkrókur  Kaffi Krókur - neðri hæð, Aðalgata 16 Facebook
Þriðjudagur
17. sept.
16:00 - 18:00Akureyri Menningarhúsið Hof - Hamrar, Strandgata 12 Facebook
Miðvikudagur 18. sept.15:00 - 17:00Reyðarfjörður Facebook
Fimmtudagur
19. sept.
15:00 - 17:00Höfn í Hornafirði Nýheimar þekkingarsetur, Litlubrú 2 Facebook
Föstudagur
20. sept.
13:00 - 14:30
Vík í Mýrdal Kötlusetur - Upplýsingamiðstöð, Víkurbraut Facebook
Mánudagur
23. sept.
14:00 - 15:30Þórshöfn Holtið - Kitchen, Langanesvegur 16 Facebook
Þriðjudagur
24. sept.
14:00 - 16:00Ísafjörður  Vestfjarðastofa Suðurgata 12 Facebook
Miðvikudagur 25. sept.14:00 - 16:00Reykjanesbær Fjörheimar, Hafnargata 88 Facebook
Fimmtudagur
26. sept
14:00 - 16:00Selfoss Facebook








Þetta vefsvæði byggir á Eplica