Viðburðir
Viðburðir af ýmsu tagi skipa stóran sess í starfsemi Rannís. Þeim er meðal annars ætlað að styðja við kynningarstarf á verkefnum og sjóðum sem Rannís hefur umsjón með. Ennfremur stendur Rannís fyrir viðburðum sem ætlað er að
gera áhrif þekkingarsköpunar sýnilegri í samfélaginu, má þar nefna Rannsóknaþing, Nýsköpunarþing og Vísindavöku.Rannís á einnig þátt í að hvetja vísinda- og fræðafólk til frekari dáða með viðurkenningum á borð við Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs og Nýsköpunarverðlaun í samvinnu við Íslandsstofu, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Hugverkastofunnar. Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru svo árlega veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna.