Styrktegundir eru tvær að þessu sinni og eru styrkir veittir til eins árs:
Áhersla er á styrki til nýsköpunarverkefna sem eru ætlaðir meðal annars til þess að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við aðlögun og innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun. Styrkupphæð til verkefnis er að hámarki 15 milljónir króna.
Ef sótt er um meira en 5 milljónir er gerð krafa um 20% mótframlag og styrkur úr Loftslagssjóði nemur þá að hámarki 80% af heildarkostnaði verkefnis.
Ef sótt er um 5 milljónir eða minna er ekki gerð krafa um mótframlag.
Áhersla er á styrki til kynningar- og fræðsluverkefna sem nýta niðurstöður nýjustu skýrslu frá IPCC (AR6), Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna, kynna þær og túlka í samhengi við íslenskt samfélag, og eru til þess fallin að virkja almenning og atvinnulíf til aðgerða. Styrkupphæð til verkefnis er að hámarki 5 milljónir króna og ekki er krafist mótframlags.
Áherslur stjórnar 2023
Nýsköpunarverkefni: Áhersla verður lögð á verkefni sem skila samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Einnig verður litið til eftirfarandi þátta;
- að verkefnið hagnýti grunnþekkingu sem þegar er til staðar,
- að verkefnið beinist að aðilum sem hafa talsverða möguleika á að draga úr losun,
- að verkefnið hafi möguleika á að nýtast sem víðast í samfélaginu og hafi áhrif út fyrir einstaka fyrirtæki, félagasamtök og/eða stofnun.