Fyrirtæki, stofnanir, háskóla og aðra lögaðila, með undantekningu þar sem um er að ræða áætlun eingöngu ætlaða litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
Markmiðið er að efla nýsköpun í Evrópu.
Stoðin býður upp á fjölmörg tækifæri fyrir fyrirtæki, stofnanir og háskóla í Evrópu til að stunda nýsköpun.
Evrópska nýsköpunarráðið (EIC) er flaggskip nýsköpunaráætlunar Evrópu og er hlutverk þess að bera kennsl á, þróa og stækka byltingarkennda tækni og nýjungar.
Vinnuáætlun Evrópska nýsköpunarráðsins 2024
Vistkerfi evrópskrar nýsköpunar (EIE) hefur það markmið að byggja upp kerfi nýsköpunar í Evrópu.
ESB stefnir að því að skapa tengdari og skilvirkari nýsköpunarvistkerfi til að styðja við stækkun fyrirtækja, hvetja til nýsköpunar og örva samvinnu.
Vinnuáætlun Vistkerfi evrópskrar nýsköpunar 2023-2024
Evrópska nýsköpunar- og tæknistofnunin (EIT) hefur það að markmiði að mynda öflugt samstarf með því að leiða saman fyrirtæki, mennta- og rannsóknarstofnanir þvert á landamæri.
Allir lögaðilar (fyrirtæki, stofnanir og háskólar) geta sótt um í áætlunina svo lengi sem viðkomandi aðili kemur frá aðildarríki Evrópusambandsins, Íslandi, Noregi og Lichtenstein, sjá lista. Ísland er fullgildur aðili að áætluninni og hafa íslenskir aðilar því jafnan rétt og aðilar innan Evrópusambandsins til að sækja um styrki.
Horizon Europe factsheets: