Upplýsingadagur Horizon Europe: Víðtækari þátttaka og efling evrópska rannsóknasvæðisins (Widera)
Upplýsingadagur Framkvæmdastjórnar ESB verður haldinn 12. desember nk. um nýja vinnuáætlun 2023-2024. Um er að ræða viðburð á netinu.
Upplýsingadagur 12. desember:
Á deginum verða kynntar megin áherslur næstu vinnuáætlunar (e. Work Programme) um víðtækari þátttöku. Markmiðið með áætluninni er að styrkja þátttöku svokallaðra “Widening Countries” sem eru að jafnaði með lægra árangurshlutfall í rannsóknaáætluninni. Jafnframt er markmiðið að stuðla að umbótum á evrópska rannsókna- og nýsköpunarkerfinu.
Væntanlegum umsækjendum gefst þannig tækifæri til að læra meira um fjármögnunarmöguleika samkvæmt nýju vinnuáætluninni.
Tengslaráðstefna 19. desemeber:
Á tengslaráðstefnunni gefast tækifæri á að koma þér og þinni stofnun/fyrirtæki á framfæri.
Starfsmenn Rannís geta veitt aðstoð við textagerð en mikilvægt er að hafa hnitmiðaðan texta til að einfalda þátttakendum leit að réttum samstarfsaðilum á tengslaráðstefnunni. Sýnileikinn eykur líkurnar á að haft verið samband við viðkomandi með boð um að vera þátttakendur í stórri Evrópusambandsumsókn.