Upplýsingadagur Horizon Europe: Rannsóknainnviðir (Research Infrastructures)
Upplýsingadagur Framkvæmdastjórnar ESB verður haldinn 6. desember nk. um nýja vinnuáætlun 2023-2024. Um er að ræða viðburð á netinu.
Á deginum verða kynntar megin áherslur næstu vinnuáætlunar (e. Work Programme) um rannsóknainnviði . Áætlunin styrkir háskóla, stofnanir og aðra aðila sem eiga og reka stóra innviði á sviði rannsókna.
Væntanlegum umsækjendum gefst þannig tækifæri til að læra meira um fjármögnunarmöguleika samkvæmt nýju vinnuáætluninni.