Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Horizon Europe á sviði loftslagsmála, orku og samgangna (Climate, Energy & Mobility)
Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Framkvæmdastjórnar ESB verður haldin 15. og 16. desember nk. í tengslum við vinnuáætlun klasa 5. Um er að ræða viðburð á netinu.
Upplýsingadagar:
Á upplýsingadögunum verða kynnt rannsóknar- og nýsköpunarviðfangsefni næstu vinnuáætlunar (e. Work Programme) fyrir árin 2023-2024 í klasa 5 í Horizon Europe. Væntanlegum umsækjendum gefst þannig tækifæri til að læra meira um fjármögnunarmöguleika samkvæmt nýju vinnuáætluninni.
Tengslaráðstefna 15. desember:
Þar gefast tækifæri á að koma þér og þinni stofnun/fyrirtæki á framfæri.Starfsmenn Rannís geta veitt aðstoð við textagerð en mikilvægt er að hafa hnitmiðaðan texta til að einfalda þátttakendum leit að réttum samstarfsaðilum á tengslaráðstefnunni. Sýnileikinn eykur líkurnar á að haft verið samband við viðkomandi með boð um að vera þátttakendur í stórri Evrópusambandsumsókn.
Ef einhverjar spurningar vakna eða þú vilt vita meira, þá getur þú sent línu eða slegið á þráðinn, kolbrun@rannis.is, 515 5814
Klasi 5 - loftslagsmál, orka og samgöngur miðar að því að berjast gegn loftslagsbreytingum. Markmiðið er að skilja betur orsakir þeirra, þróun, áhættu, áhrif og tækifæri með því að gera orku- og flutningageirann loftslags- og umhverfisvænni, skilvirkari og samkeppnishæfari, snjallari, öruggari og þrautseigari.
Klasi 5 hefur eftirfarandi áherslusvið:
- Loftlagsvísindi og lausnir
- Orkuflutningur
- Orkudreifikerfi
- Almennar bygginar og iðnaðar byggingar í orkuskiptum
- Samfélög og borgir
- Samkeppnishæfni í samgöngum
- Hreinar, öruggar og aðgengilegar samgöngur
- Snjallar samgöngur
- Orkugeymsla