Námskeið fyrir byrjendur í umsóknaskrifum í Horizon Europe
Sérfræðingar Rannís bjóða upp á tvö námskeið í umsóknarskrifum þann 4. og 5. desember nk. frá klukkan 9:00-12:00. Fyrra námskeiðið verður haldið á staðnum og er takmarkaður sætafjöldi í boði. Seinna námskeiðið er á netinu.
Námskeiðin eru ætluð fyrir byrjendur en þó er gengið út frá því að þátttakendur hafi einhverja þekkingu á Horizon Europe, hafi hug á að skrifa umsókn eða séu í umsóknarskrifum.
Á námskeiðinu verður farið ítarlega í hverja spurningu á umsóknareyðublaðinu. Einnig verður farið í gegnum eldri umsókn (e. call for proposal).
Takmarkaður sætafjöldi er á námskeiðið á staðnum (staðsetning verður auglýst síðar) og er pláss fyrir 30 þátttakendur.
Námskeiðin eru ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig. Bæði námskeiðin verða á ensku.