Fyrirtæki, einstaklinga, samtök og opinbera aðila.
Digital Europe mun móta stafræna framtíð Evrópu og styður við verkefni sem brúa bilið milli rannsókna og þróunar og stafrænna afurða á markaði. Áætlunin veitir stefnumótandi fjármögnun til verkefna á fimm lykilsviðum:
Mismunandi er eftir áhersluatriðum áætlunarinnar hvenær árs opnað er fyrir nýjar umsóknir. Þann 21. nóvember 2023 opnaði fyrir þrjár umsóknir á sviði netöryggismála og stafrænnar hæfni og er umsóknarfrestur 21. mars 2024.
Upptaka frá kynningarfundi 2. des. 2021 | Introducing the DIGITAL Europe Programme |
Digital Europe er ný styrkjaáætlun sem leggur áherslu á að auka aðgengi að stafrænni tækni til fyrirtækja, einstaklinga og opinbera aðila. Markmið áætlunarinnar er að takast á við eina stærstu áskorun okkar tíma – stafræn umskipti. Áætlunin er viðbót við aðrar áætlanir eins og Horizon Europe, en er ætlað að vinna snuðrulaust með þeim og skapa þannig samlegðaráhrif.
Ofurtölvur: Markmiðið með undirflokk Digital Europe áætlunarinnar um ofurtölvur er að byggja upp og styrkja ofurtölvu- og gagnavinnslugetu Evrópu fyrir 2022/2022 og setja upp ofurtölvuaðstöður á heimsmælikvarða fyrir 2026/2027. Áhersla er lögð á að auka aðgengi og notkun ofurtölva á sviðum sem varða almannahagsmuni eins og heilsu, umhverfismálum og öryggi í iðnaði. Til úthlutunar eru 2,2 milljarðar evra á tímabilinu 2021 – 2027.
Gervigreind: Markmiðið með undirflokk Digital Europe áætlunarinnar um gervigreind er að fjárfesta í og auka aðgengi fyrirtækja og stjórnvalda að gervigreind. Setja á upp örugg evrópsk gagnarými þar sem hægt er að nálgast og geyma stór gagnasöfn í áreiðanlegum og orkusparandi skýjainnviðum. Áhersla er á að styrkja og styðja við gervigreindarprófanir og tilraunaaðstöður á sviðum eins og heilsu, sveigjanleika í samstarfi meðal aðildarríkja. Til úthlutunar eru 2,1 milljarðar evra á tímabilinu 2021 – 2027.
Netöryggi: Markmið með undirflokk Digital Europe áætlunarinnar um netöryggi er að efla samhæfingu netöryggis milli aðildarríkja með ýmiskonar verkfærum og gagnainnviða. Áhersla er lögð á að auka þekkingu og auka notkun á öflugu á netöryggi þvert á hagkerfi aðildarríkja. Til úthlutunar er 1,6 milljarður evra á tímabilinu 2021 – 2027.
Stafræn hæfni: Markmið með undirflokk Digital Europe áætlunarinnar um stafræna hæfni er að styðja við og þróa sérhæfða fræðslu og þjálfun fyrir framtíðar sérfræðinga m.a. á sviðum gagnamála, gervigreindar, netöryggis, skammtafræðum og ofurtölva. Áhersla er lögð á að styðja við endurmenntun núverandi vinnumarkaðar með þjálfun sem endurspeglar áframhaldandi þróun á lykilsviðum stafrænnar tækni. Til úthlutunar eru 580 milljón evrur á tímabilinu 2021 – 2027.
Nýting stafrænna lausna / stafrænar miðstöðvar: Markmið með undirflokk Digital Europe áætlunarinnar um nýtingu stafrænna er að styðja við víðtæka innleiðingu stafrænna lausna á sviðum sem varða almannahagsmuni, svo sem heilsu, grænna lausna, snjallbora og menningu. Í hverju aðildarríki verður byggt upp og stuðningur veittur við stafrænar miðstöðvar (European Digital Innovation Hubs – EDIH) sem munu aðstoða fyrirtæki við að grípa stafræn tækifæri. Lögð er áhersla á að veita opinberum aðilum og fyrirtækjum aðgang að stafrænum lausnum og byggja upp trausta ferla stafrænnar umbreytingar. Til úthlutunar er 1,1 milljarður evrur á tímabilinu 2021 – 2027.
European Digital Innovation Hub (EDIH-IS) á Íslandi var formlega opnað 2. febrúar 2023.
Nánari upplýsingar um starfsemi European Digital Innovation Hub (EDIH-IS)
Fyrirtæki (sérstaklega lítil og meðalstór), einstaklingar, samtök og opinberir aðilar.
Til þess að umsókn teljist styrkhæf verður hún að uppfylla þau skilyrði sem gerð eru í umsóknarferlinu og tengsl við markmið sjóðsins að vera augljós.
Rannís hefur umsjón með áætluninni í samvinnu við háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti.