Ár hvert er samþykktur ákveðinn fjöldi umsókna í COST áætlunina. Í kjölfarið er birtur listi yfir samþykktar umsóknir og gefst þá vísindamönnum um alla Evrópu tækifæri til að taka þátt í þessum verkefnum ef þau falla að þeirra fræðasviðum. Valdir eru að hámarki tveir fulltrúar frá hverju landi og gerast þeir stjórnarmeðlimir verkefnisins (management committee). Stjórnarmeðlimir funda tvisvar á ári víðsvegar um Evrópu og taka þátt í að fylgja eftir framkvæmd og stefnu verkefnisins.
COST verkefni standa yfir í um fjögur ár. Eftir að verkefnið er hafið hefur stjórnin allt að fjórar vikur til að samþykkja viðkomandi. Það er mælt með því að reyna að taka þátt í verkefni frá upphafi þess.
Viljir þú taka þátt í COST verkefni skaltu sækja um beint til Rannís í formi bréfs þar sem óskað er eftir aðkomu að ákveðnu verkefni:
Sendið ofangreind skjöl sem viðhengi í tölvupósti til Bylgju Valtýsdóttur.
Við mat á umsóknum vegna þátttöku í COST verkefnum er gengið út frá fjórum meginatriðum:
Tekið er mið af dreifingu milli stofnana
hérlendis sem og dreifingu á milli þátttakenda (svo sem, er þátttakandi í fleiri en einu COST
verkefni).