Mats- og úthlutunarferlið
- Umsóknarfrestur er einu sinni á ári. Umsóknum skal skilað á
rafrænu formi í gegnum vefsíðu Rannís. Forsenda styrkveitingar er að fyrir
liggi staðfestur náms- eða starfsþjálfunarsamningur.
- Hver umsókn tekur til 12 mánaða, en mest er hægt að sækja um styrk fyrir 48 vikur á hvern
einstakling í vinnustaðanámi yfir tímabilið.
- Styrkir verða greiddir út í heilu lagi eftir að staðfest hefur verið að umsóttar vikur hafi verið unnar á árinu.
- Ekki er greitt fyrir unnar vikur umfram samning.