Umsóknir og eyðublöð

Mennta- og barnamálaráðuneyti fer með yfirstjórn sjóðsins. Rannís annast umsýslu og afgreiðslu styrkumsókna fyrir hönd ráðuneytis. Umsóknareyðublað sjóðsins er á rafrænu formi. Fyrirtæki og stofnanir senda inn eina umsókn og fylla sérstaklega út upplýsingar fyrir hverja námsbraut. Til þess að nálgast umsóknareyðublaðið þarf að tengjast umsóknarkerfi Rannís.


Styrktímabil

Styrktímabilið er  frá 1. nóvember til 31. október, ár hvert. Umsóknafrestir eru auglýstir á forsíðu Rannís og á forsíðu sjóðsins.

  • Fjárhæð styrkja ræðst af framlögum á fjárlögum til málaflokksins og eftirspurn.
  • Veittir eru styrkir til þeirra sem uppfylla skilyrði og fer upphæð eftir eftirspurn og fjölda umsókna.

  • Hámarks vikufjöldi fyrir hvern nema eru 48 vikur á ári.

Umsóknarferlið

  • Sótt er um í gegnum umsóknarkerfi Rannís.
  • Stofnanir og fyrirtæki senda inn eina umsókn. Hún er tvískipt, þar sem annarsvegar eru upplýsingar um fyrirtækið/stofnunina sem sækir um og hinsvegar upplýsingar um fjölda nema og fjölda vikna í hverri námsgrein fyrir sig. 

Fylgigögn

  • Hverjum nema skal fylgja launamiði, síðasti launaseðill ársins eða annars konar gögn sem staðfesta að umsóttar vikur hafi verið unnar á viðkomandi tímabili.
  • Hverjum nema skal fylgja staðfesting á námssamningi. Best er að það sé afrit af námssamningi sem tilsjónarmaður nema á vinnustað getur nálgast á í ferilbók nemans. Ef af einhverjum ástæðum ekki er til undirritaður námssamningur þarf einhver önnur staðfesting að fylgja, t.d. gögn frá skóla sem staðfesta að nemi sé í starfsnámi hjá umsækjanda.

Sjá kynningarmyndband um hlutverk tilsjónarmanns hema hjá vinnustað og hvernig hann nálgast námssamning í ferilbók.
Sjá fleiri kynningarmyndbönd um rafræna ferilbók frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) sem hefur umsjón með innleiðingu rafrænnar ferilbókar í vinnustaðanámi. 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica