Fyrir hverja?
Kennara og starfsmenn sem koma að tungumálakennslu á öllum stigum.
Til hvers?
Stuðningur við nám og kennslu í tungumálum, t.d. styrkir til að sækja námskeið og vinnustofur.
Umsóknarfrestur
Það eru engir umsóknarfrestir heldur er alltaf opið fyrir umsóknir. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Miðstöðvar evrópskra tungumála.
Miðstöð evrópskra tungumála ( European Centre for Modern Languages - ECML ) er stofnun á vegum Evrópuráðsins sem er staðsett í Graz, Austurríki. Hlutverk Tungumálamiðstöðvarinnar er að efla og styðja við nám og kennslu í tungumálum í Evrópu. Starfsemi tungumálamiðstöðvarinnar felst m.a. í skipulagningu námskeiða og vinnustofa í Graz og víðar. Einnig er á vegum stofnunarinnar unnið að margvíslegum þróunar- og rannsóknarverkefnum á sviði tungumálanáms og tungumálakennslu í tengslum við vinnustofur og námskeið. Aðildarlönd geta almennt sent einn þátttakanda á hvert námskeið (vinnustofu) sér að kostnaðarlausu.
Tímabilið 2024-2027 er tileinkað Tungumálakennslu sem grunni að lýðræði (Language Education at the Heart of Democracy). Miðstöð evrópskra tungumála hefur alltaf fylgst að með nýjum áherslum í tungumálakennslu í aðildarlöndum hennar, en einnig forgangsröðun Evrópuráðsins í menntamálum varðandi menntun án aðgreiningar og mannréttindi og lýðræði, þar sem þróun tungumálakunnáttu og menningarlegrar færni leikur lykilhlutverk. Boðið verður upp á fjölmargar vinnustofur og verkefni á tímabilinu.
Nánari upplýsingar um áhersluatriði tímabilsins 2024-2027 og margt fleira má finna á vef Miðstöðvar evrópskra tungumála.
Rannís er tengiliður (Contact Point) Miðstöðvar evrópskra tungumála á Íslandi. Hlutverk Rannís er að veita upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar. Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands sér um að velja þátttakendur á vinnustofur. Tengiliður HÍ (Nominating Authority) er Eyjólfur Már Sigurðsson Eyjólfur Már Sigurðsson