2019 - 2020
44 verkefni hlutu styrk úr Sprotasjóði skólaárið 2019-2020.
Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2019-2020. Sjóðnum bárust alls 100 umsóknir og var heildarupphæð umsókna rúmar 219 millj. kr. Veittir voru styrkir til 44 verkefna að upphæð rúmlega 57 millj. kr.
Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Áherslusvið sjóðsins að þessu sinni voru:
- Efling íslenskrar tungu
- Lærdómssamfélag í samvinnu innan eða milli kerfa
- Færni til framtíðar
Heildarumsóknir til sjóðsins skiptust eftirfarandi milli skólastiga: Verkefni í leikskólum 19, í grunnskólum 54, í framhaldsskólum 10 og þvert á skólastig 17 umsóknir (þar af var 1 umsókn frá leik- grunn- og framhaldsskólastiginu, 13 umsóknir frá leik- og grunnskólastiginu og 3 umsóknir frá grunn- og framhaldsskólastiginu).
Yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu styrk.
Styrkirnir dreifðust með eftirfarandi hætti milli skólastiga og landshluta: