Rafrænn kynningarfundur um Nordplus
Næsti umsóknarfrestur fyrir áhugasama umsækjendur um verkefnastyrk Nordplus er 3. febrúar 2025 og því verður haldinn kynningarfundur á Teams þann 26. nóvember 2024 kl. 13:00-14:00.
Nordplus er stærsta menntaáætlun Norðurlandanna og inniheldur fimm undiráætlanir á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, á háskólastigi, á sviði tungumála Norðurlandanna og svo áætlun sem vinnur þvert á skólastig.
Næsti umsóknarfrestur um verkefnastyrk er 3. febrúar 2025 og því verður haldinn kynningarfundur á Teams þann 26. nóvember 2024 kl. 13:00-14:00.
Á fundinum verða kynnt öll þau tækifæri sem Nordplus býður upp á. Ef þið hafið í huga að sækja um styrk eða viljið heyra meira um umsóknarferlið fyrir verkefni þá er tilvalið að taka þátt og spyrja allra þeirra spurninga sem þið hafið. Starfsfólk Nordplus verður á staðnum, segir frá umsóknarferlinu og gefur góð ráð varðandi verkefnin.
Viðburðurinn er opinn fyrir öll en við biðjum ykkur um að skrá ykkur með því að smella á hnappinn fyrir neðan.
Nánari upplýsingar veitir Eydís Inga Valsdóttir, umsjónarmaður Nordplus Norrænu tungumálaáætlunarinnar, nordplus@rannis.is