Fyrir umsækjendur
Þegar sækja á um í Nordplus er að mörgu að hyggja. Hér eru nokkrar ráðleggingar sem vert er að hafa í huga. Til dæmis hefur danska landskrifstofan tekið saman góð ráð um gerð umsókna, (á ensku).
Umsóknarfrestir
Umsóknarfrestur er einu sinni á ári, fyrsta virka dag febrúar á hverju ári.
Undirbúningsstyrkir: umsóknarfrestur er tvisvar á ári í febrúar og október (fyrsta virka dag í febrúar og fyrsta virka dag í október)
Markhópar
Nordplus skiptist í 5 undirflokka, einn fyrir hvert skólastig:
- Nordplus Junior fyrir leik-, grunn-, og framhaldsskóla
- Nordplus Voksen fyrir fullorðinsfræðslustofnanir
- Nordplus Hoyere utdanning fyrir stofnanir á háskólastigi
- Nordplus Horizontal fyrir samstarf þvert á skólastig
- Nordplus Nordens språk verkefni fyrir þá sem vilja vinna að því að auka norrænan málskilning á öllum skólastigum
Helstu þrepin í umsóknarferlinu
Við mælum með að þú skoðir vel hvernig sækja á mig skref fyrir skref á vef Norplusonline.
Námskeið fyrir umsækjendur
Á hverju ári stendur starfsfólk Landskrifstofu Nordplus fyrir námskeiðum fyrir umsækjendur. Þessi námskeið eru auglýst á vefsíðunni, á samfélagsmiðlum og einnig eru auglýsingar um námskeið send út á póstlista Nordplus: Skrá mig á póstlista Nordplus