UK-Iceland Explorer náms­styrkja­sjóðurinn

Samstarf milli Íslands og Bretlands um háskólanám

Fyrir hverja?

Íslenska nemendur sem stefna á framhaldsnám í Bretlandi. 

Til hvers?

Til náms á öllum fagsviðum til fullrar gráðu.

Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur er 27. mars 2025. 

EN


Hvert er markmiðið?03c05777

UK-Iceland Explorer námsstyrkjasjóðurinn leitast við að efla enn frekar samstarf milli Bretlands og Íslands á sviði háskólamenntunar. Hann mun styðja íslenska nemendur sem vilja stunda nám í Bretlandi, styrkja vísinda- og rannsóknarsamfélag landanna beggja og leggja grunn að frekara tvíhliða rannsóknarsamstarfi milli þeirra. Geimferðastofnun Bretlands, UK Space Agency, veitir styrkina í samstarfi við Rannís og breska sendiráðið í Reykjavík. 

Hver geta sótt um styrk?

Einstaklingar sem stefna á háskólanám til fullrar gráðu í Bretlandi, annaðhvort á meistara- eða doktorsstigi. Styttra námstímabil, eins og skiptinám, er ekki styrkhæft.

Hvað er styrkt?

Háskólanámið er styrkt í 12 mánuði og nemur heildarstyrkur fyrir háskólanám að hámarki £10.000. Styrkir verða veittir til fjögurra einstaklinga á ári hverju. 

Skilyrði úthlutunar03c01660

Umsækjandi skal hafa lokið Bachelor-gráðu hið minnsta og hafa fengið samþykkta skólavist við breskan háskóla á meistara- eða doktorsstigi. Ef umsókn er send inn áður en þetta hefur verið staðfest er möguleg styrkúthlutun veitt með fyrirvara um að gögn til staðfestingar á útskrift / skólavist berist um leið og þau liggja fyrir. Umsækjandi skal hafa íslenskan ríkisborgararétt og má ekki hafa hlotið námsstyrk frá breskum yfirvöldum áður. Styrkhafar eru valdir á grundvelli námsárangurs, tengingar náms við áhersluatriði í samstarfi Íslands og Bretlands og metnaðar í framtíðaráformum umsækjenda. Með inngildingu að leiðarljósi er einnig tekið tillit til ólíkra aðstæðna umsækjenda í valferlinu. Sjóðurinn er opinn öllum námssviðum en umsóknir sem tengjast geimvísindum og STEM greinum (vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði) eru settar í sérstakan forgang þar sem styrkurinn er fjármagnaður af Geimvísindastofnun Bretlands. Þá eru eftirfarandi námssvið sameiginleg forgangsatriði Íslands og Bretlands og verður tekið tillit til þeirra í umsóknarferlinu: mannréttindi og jafnrétti kynjanna; öryggismál og alþjóðasamskipti; hnattræn heilsa. 

Hvernig er sótt um?

Umsóknarfrestur er 27. mars 2025.
Fylgigögn skulu send á netfangið embla.s.thorolfsdottir@rannis.is.
Umsóknarformið má nálgast hér: UK-Iceland Explorer Application Form 2025

Hlutverk Rannís

Rannís hefur umsjón með sjóðnum í samvinnu við breska sendiráðið á Íslandi og Bresku geimferðastofnunina (UK Space Agency).

Nánari upplýsingar








Þetta vefsvæði byggir á Eplica