Spurt og svarað

Vinsamlegast hjálpið okkur að uppfæra þessa síðu um „spurt og svarað“. Sendið okkur línu ef þið eruð með spurningu almenns eðlis og finnið ekki svar við henni hér eða fannst svarið ekki nógu skýrt.

tonlistarsjodur@rannis.is

Hverjir geta sótt í tónlistarsjóð?

Tónlistarfólk, hljómsveitir, kórar og aðrir er að koma að tónlistarflutningi 

Hlutverk tónlistarsjóðs?

Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. 

Má sækja um á ensku?

Hvaða vafra á að nota?

  • Mælt er með því að nota Chrome vafra. 
  • Ekki er hægt að nota vafrana Internet Explorer, eldri útgáfur af Microsoft Edge eða Safari við útfyllingu umsókna.
  • Hafið ekki tvær umsóknir opnar samtímis í sama vafra – þá vistast ekki upplýsingar

Hvernig er umsóknarkerfið?

  • Notast er við rafræn skilríki í snjallsíma eða íslykil. Hægt er að stofna fleiri en eina umsókn.
  • Umsókn verður ekki gild fyrr en ýtt er á „senda inn“ á lokasíðu umsóknarformsins. Þar er hægt að skoða umsókn í pdf skjali.
  • Vistið eftir hvert skref (síðu) í umsóknarforminu.
  • Ef farið er út úr umsókn er hægt að fara inn aftur á mínum síðum. „Umsóknir í vinnslu“ er fremst þegar komið er inn á mínar síður.
  • Umsóknarblaðið leiðir umsækjanda áfram og margir reitir eru skyldureitir – úthlutanir fyrri ára koma sjálfkrafa fram á kt styrkþega.
  • Aðgang að umsóknarkerfinu er að finna á forsíðu sjóðsins.

Hver er umsóknarfrestur? Get ég lent í vandræðum á lokadegi.

  • Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári í byrjun nóvember fyrir verkefni á fyrri hluta árs og byrjun maí fyrir verkefni sem á að framkvæma á síðari helming árs.
  • Eindregið er mælt með að sækja um með góðum fyrirvara og forðast tímaþröng á síðasta degi.
  • Á lokadegi getur kerfið verið þungt í vöfum vegna álags og hugsanlega leitt til vandræða við frágang umsóknar.
  • Ef umsækjandi er að senda umsókn á síðustu stundu (eftir að hægt er að fá aðstoð/ráðgjöf hjá Rannís) og lendir í tæknilegum vandræðum tengdum umsóknarkerfi Rannís þarf að TILKYNNA það með tölvupósti ÁÐUR EN UMSÓKNARFRESTI LÝKUR og helst að láta skjáskot sem sýna vandamálið fylgja með. Kvartanir um tæknileg vandamál sem berast eftir að umsóknarfrestur er liðinn verða ekki teknar til greina. 
  • Vandamál ótengd umsóknarkerfi Rannís eru að öllu jöfnu ekki tekin til greina og vísað til þess að opið er fyrir umsóknir í 6 vikur eða lengur. Tilkynningar um slík vandamál sem berast eftir umsóknarfrest eru ekki teknar til greina.

Fylgigögn – hvernig á að skila þeim?

  • Fylgigögn verða að koma með umsókninni í gegnum umsóknarkerfið.
  • Ekki er tekið á móti fylgigögnum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Ég get ekki sent umsóknina inn

  • Þegar komið er á lokasíðu getur birst rauð vísun í einhverja síðu umsóknarinnar, þá átt þú eftir að klára eitthvað í umsókninni á þeirri síðu sem vísað er til. Ekki á að smella á rauða textann, heldur farðu á viðeigandi síðu, fylltu inn það sem vantaði og vistaðu.
  • Ef eitthvað annað er að hindra sendingu hafðu þá samband í síma 5155838 eða 5155839
  • Ef umsækjandi er að senda umsókn á síðustu stundu (eftir að hægt er að fá aðstoð/ráðgjöf hjá Rannís) og lendir í tæknilegum vandræðum tengdum umsóknarkerfi Rannís þarf að TILKYNNA það með tölvupósti ÁÐUR EN UMSÓKNARFRESTI LÝKUR og helst að láta skjáskot sem sýna vandamálið fylgja með. Kvartanir um tæknileg vandamál sem berast eftir að umsóknarfrestur er liðinn verða ekki teknar til greina. 
  • Vandamál ótengd umsóknarkerfi Rannís eru að öllu jöfnu ekki tekin til greina og vísað til þess að opið er fyrir umsóknir í 6 vikur eða lengur. Tilkynningar um slík vandamál sem berast eftir umsóknarfrest eru ekki teknar til greina.

Hvernig veit ég að umsókn mín er móttekin?

  • Þegar umsókn hefur verið send inn í sjóð, fær umsækjandi svar í netfang sitt ásamt pdf formati af umsókn. ATH: Stundum fer svar í ruslsíu póstforrits.
  • Ef póstur berst ekki, er hægt að sjá innsendar umsóknir á mínum síðum. Farið inn á Mínar síður og þar í Umsóknir > Innsendar. Sé umsóknin þar er hún móttekin. Einnig er hægt að skoða PDF þar.

Hvenær get ég átt von á svari?

  • Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir að jafnaði innan tveggja mánaða eftir að umsóknarfresti lýkur. Allir umsækjendur fá svör í tölvupósti. Úthlutun mun einnig birtast á heimasíðu Rannís og MRN.

Framvinduskýrsla/lokaskýrsla

  • Hafi umsækjandi fengið styrk áður, skal skila framvindu- eða lokaskýrslu ef við á, fyrir umsóknarfrest. 
  • Á einnig við um vorátak 2020. Annars verður umsókn ekki tekin til umfjöllunar.
  • Nánari upplýsingar um framvinduskýrslu hér .

Hvernig er tónlistarráð skipað?

Ráðherra skipar tónlistarráð til þriggja ára í senn. Í ráðinu eru þrír fulltrúar. Samtónn tilnefnir einn, en tveir eru skipaðir án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður ráðsins. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Tónlistarráð 2019 til 2022:

  • Árni Heimir Ingólfsson, skipaður án tilnefningar,
  • Ragnhildur Gísladóttir, skipuð án tilnefningar,
  • Sóley Stefánsdóttir, tilnefnd af Samtóni.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica