Umsókn og mat umsókna
Umsóknarfrestur vegna umsókna um starfslaun listamanna, sem úthlutað verður í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009, er í byrjun október ár hvert (2. október, klukkan 15:00 árið 2023).
Að fylla út umsókn - leiðbeiningarmyndband
Listamenn eru hvattir til að skila umsóknum tímanlega.
Nokkur atriði sem hafa ber í huga
- Umsóknir eru einstaklingsumsóknir og nota þarf rafræn skilríki við gerð þeirra.
- Sviðslistahópar sækja um í launasjóð sviðslistafólks í gegnum umsókn Sviðslistasjóðs .
- Ef við á þarf að tilgreina umsóknarnúmer samtarfslistamanna í umsóknum.
- Skrifa má umsókn á ensku.
- Ætli listamaður að sækja um úr fleiri en einum launasjóði, þarf að senda eina umsókn fyrir hvern sjóð.
- Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður áfanga- eða lokaskýrslu að hafa verið skilað vegna fyrri starfslauna. Sjá nánar um skýrsluskil.
Vinna/verkefni sem liggja til grundvallar umsókn (50%)
- Listrænt gildi verka
- Eru verk vel skilgreind?
- Eru verk áhugaverð?
Ferill listamanns (30%)
- Hefur listamaður fengið afgerandi viðurkenningu eða verk hans vakið almenna athygli?
- Hafa verk viðkomandi verið sýnd, flutt eða birt opinberlega?
- Er viðkomandi að hasla sér völl með áhugaverðri umsókn?
Verk- og tímaáætlun (20%)
- Er vinnulýsing vel skilgreind?
- Er vinnulýsing sannfærandi?
- Er trúlegt að markmið náist?
Launagreiðslur ef úthlutun fæst
Í umsókn er beðið um bankaupplýsingar og áætlaðan upphafsmánuð vinnu. Fáist úthlutun hefjast launagreiðslur í áætluðum upphafsmánuði nema óskað sé eftir öðru. Hægt er að senda inn beiðni um að fresta töku launa en það þarf að gerast fljótlega eftir að úthlutun er tilkynnt.