Stjórn

Menningar- og viðskiptaráðherra skipar þrjá menn í stjórn listamannalauna til þriggja ára í senn, einn samkvæmt tilnefningu Bandalags íslenskra listamanna, einn samkvæmt tilnefningu Listaháskóla Íslands og einn án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.

Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi aðalmanna. Ekki er heimilt að skipa sama mann aðalmann í stjórn listamannalauna lengur en tvö samfelld starfstímabil.

Núverandi stjórn listamannalauna er skipuð til 31. maí 2027.

Stjórn listamannalauna skipa eftirtalin:

  • Jónatan Garðarsson formaður, skipaður án tilnefningar
  • Kolbrún Ýr Einarsdóttir, tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna
  • Eva María Árnadóttir tilnefnd af Listaháskóla Íslands
Varamenn eru:
  • Elísabet Indra Ragnarsdóttir skipuð án tilnefningar,
  • Erling Jóhannesson tilnefndur af Bandalagi íslenskra listamanna,
  •  Kristín Eysteins tilnefnd af Listaháskóla Íslands.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica