Creative Europe bókmenntaþýðingar - auglýst eftir umsóknum
Creative Europe styrkir þýðingar, útgáfu og dreifingu á evrópskum bókmenntum og er næsti umsóknarfrestur 16. apríl 2024.
Þema og forgangsatriði:
-
Dreifing og kynning á evrópskum bókmenntum
- Þýðingar bókmennta frá minni málsvæðum til stærri markaða í Evrópu
- Aukin samkeppnishæfni evrópskra bókmennta og hvatt er til samvinnu bókaútgefenda
- Stefnt er að ná til yngra fólks
- Sanngjörn starfskjör rithöfunda og þýðenda
- ESB hefur í huga sérstaka stöðu í Evrópu vegna stríðsátaka
- Grænar áherslur og jafnrétti
Skilyrði: Verkefnið feli í sér að minnst fimm bókmenntaverk séu þýdd frá einu evrópsku tungumáli á annað.
Miðað er við að einn lögaðili sæki um og geti verið í samvinnu við aðra útgefendur.
Útgefendur og verkefnisstjóri / lögaðili til minnst tveggja ára þegar umsókn er send inn.