Creative Europe styrkir verkefni sem nýtast til að styðja við ýmis stefnumál framkvæmdastjórnar ESB eins og t.d. Green Deal (grænar lausnir), jöfn tækifæri, sjálfbærni og jafnrétti kynjanna.
Ný áætlun hefur um 50% meira fé til umráða en fyrri áætlun Creative Europe 2014-2020 og er ætlað að leggja sitt af mörkum til að menningargeirinn nái sér aftur á strik eftir heimsfaraldurinn
Creative Europe skiptist í þrjár meginstoðir: MEDIA (kvikmynda- og margmiðlunarverkefni),
MENNINGU (verkefni á sviði menningar og skapandi greina), og ÞVERÁÆTLUN ( samvinna þvert á skapandi greinar og nær einnig yfir fjölmiðla).
Allir lögaðilar, menningarfyrirtæki og –stofnanir, geta sótt um til Creative Europe en skilyrði er að þátttakendur séu frá aðildarríkjum Evrópusambandsins og / eða Íslandi, Noregi og Liechtenstein.
Ísland er fullgildur aðili áætlunarinnar og hafa íslenskir aðilar því jafnan rétt og aðrir innan Evrópusambandsins til að sækja um styrki.
Rannís er umsýsluaðili Creative Europe á Íslandi og hefur umsjón með kynningu á áætluninni og veitir umsækjendum upplýsingar og aðstoð.
Skoðaðu vefsíðu Creative Europe hjá ESB til að kanna þá möguleika sem bjóðast. Þar er einnig hægt að skoða niðurstöður verkefna sem þegar hafa verið styrkt.
Quality Assessment of Green Aspects in Creative Europe Projects (Culture Strand)