Umsýsla og skýrsluskil
Samningur, greiðsla og eftirfylgni
Gerðir eru samningar um styrkveitingar og við undirritun koma 80% styrksins til greiðslu en 20% eftir að rafræn greinargerð um verkefnið hefur borist stjórn, þó má gera undantekningu frá þessari reglu ef upphæð styrksins er undir kr. 1 milljón króna.
- Greinargerð vegna ráðstöfunar styrks skal skilað innan þriggja mánaða frá þeim tíma að verki telst lokið samkvæmt skilmálum.
- Heimilt er að krefja styrkþega um uppgjör staðfest af löggiltum endurskoðanda.
- Sé styrkur Barnamenningarsjóðs 3 milljónir eða hærri skal senda inn hreyfingarlista bókhalds sem viðhengi með skýrslunni.
- Ef að verkefni nær yfir fleiri en eitt almanaksár er kallað eftir áfangaskýrslu verkefnis og/eða ef sótt er um styrk úr sjóðnum að nýju áður en lokaskýrsla fyrri styrks hefur borist. Sama skýrsluform er notað fyrir áfangskýrslu og lokaskýrslu en fjárhagsyfirlit þarf ekki að fylgja með henni.
Skýrsluform
Breyting á innskráninguInnskráningarleið Íslands.is hefur breyst (frá október 2024) og íslykill lagður niður. Þurfi stofnun/fyrirtæki að veita starfsmanni umboð er Rannís skráð undir fullu heiti þegar umboð er veitt: Rannsóknamiðstöð Íslands - Rannís. Sjá nánar
um umboð og aðgangsstýringu á Íslands.is.